Live to day sleep tomorrow
31.05.2006 16:20:54 / helgam

hehehe

jæja ætli ég verði þá ekki að skrifa eina stutta færslu eða svo =) allaveganna til að monta mig smá þar sem það eru 2 vikur þangað til ég fer til frakklands og Chamonix og enda vonandi upp á tindi Mont Blanc sem er 4810 metra hár :lol: shit hvað mig hlakkar til og kvíður líka smá fyrir verð nú að viðurkenna það.

Annars er bara búið að vera nóg að gera síðustu mánuði, klára skólann,vinna, æfa fyrir ferðina, flytja, jöklaferðir hægri og vinstri, framboð og já svo fór bbb mín að keppa í Motocross á klaustri og lenti í 7 sæti og ég gæti ekki verðir stoltari af henni 8) hún er hetja þessar mánaðar TIL HAMINGJU BÁRA MÍN.

Ætli ég reyni svo ekki að vera duglegri að skrifa svona bráðum

Þangað til næst bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 23:20:19 / helgam

Þreyttur.is

Jæja þá er ég komin aftur í bæinn til múttu í afslöppun eftir frekar erfiða viku.

Fór með skátahópinn minn yfir nótt upp í Skorradal á þriðjudaginn : 8 stk 12 ára gamlar stelpur og  3stk 13 ára gamlir krakkar. Það var mikið fjör við fórum í miðnæturgöngu, út á sodiac eftir það og svo voru næturleikir og draugasögur langt fram eftir nóttu. Var svo komin heim um 17, fór heim og pakkaði og verslaði í matinn fyrir Langjökulsferðina. Fór á rúntinn með ýmsum og var ekki farin að sofa fyrr en um 3. Vaknaði kl 7.30 og og fór upp í hús að gera bílana klára og var auðvitað fyrst og þurfti því að bíða til 9 eftir að nokkrir haugar kæmu sér í hús. Lögðum svo af stað og hittum restina af bílunum upp í Reykholti. vorum svo kominn á jökulinn upp úr hádegi. Geiri sæm gerði mig að bílstjóra á sleðanum sínum svo ég..... skrifa meira á morgun verð að fara að sofa


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 16:09:57 / helgam

Hellú

Jæja góðir lesendur ;). Ætli það sé komin vika síðan ég skrifaði síðast? hehehe

Þessi vika er búin að vera svoldið bissí  :). Síðasta föstudag fór ég í gæslu á NFFA ballið sem var grímuball og það var rosa stuð, gaman að sjá allt fólkið sem er með manni í skóla uppdressaði í grímuballsföt!! sumir tóku þetta með stæl og mættu í t.d bangsimonbúning, löggubúning o.s.frv. gerðist nú samt ekkert markvert björguð tveim upp úr sinni eigin ælu og það var eiginlega allt hehe.  Fór svo á ball með Kungfú, eða hvað hún heitir, á laugardaginn og það var geggjað gaman. Missti samt af slagsmálunum sem voru eftir ballið vegna sjoppuferðar ;).

Fengum útkall á þriðjudagsnóttina og vorum í bílaleit í 14 klukkutíma, ég og Bella slepptum því svo bara að fara að sofa og fórum með Beggu í bæinn og skelltum okkur í klifurhúsið. Þar var mikið hlegið og dottið og er ekki spurning með það að maður verður að æfa sig í þessu fyrir sumarið. Fór svo í bæinn á föstudaginn og ætlaði bara að vera hjá múttu, en þá barst útkall og var brunað út í kópavog að ná í Belluna og svo upp á skaga og beint út á Mýrar þar sem beið okkar tún í ljósum logum. Vorum með klappara (dót til að berja í grasið til að slökkva í eldnum) lemjandi í grasið til 5 um nóttina en þá var bara brunað heim á Skagann, og í sturtu að skola af sér skítinn, en mér tókst að sökkva upp að mitti í mýri takk fyrir takk ;) (Helga María er klaufi) og drullan fyllti skóinn minn og smeig upp buxnaskálmina hehehe.

Núna sit ég bara ehima hjá múttu í rólegheitum og ætla mér að vera hérna í smá afslöppun fram á mánudag 8)

En þangað til næst bæbæ ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 11:18:42 / helgam

næsta vika ;)

Já það lítur út fyrir að þetta sé svona einu sinni í viku blogg hahaha, sniðugar að fatta þetta. Lítill tími : lítið blogg.  Svo alltaf þegar ég sest niður til að skrifa þá man ég ekkert hvað er búið að gerast hehehehe.

En allavegann þá fór ég í bæinn á föstudag, með Alex til múttu og kíkti í smárann og fékk mér fullt af fötum og drasli, kíkti svo út með Heiði á föstudagskveldið, fórum á Mörkina og Heiður skemmti sér stórkostlega  (getið lesið meira um það á blogginu hennar hehehe). En allavegann þá fór ég bara edrú og var á bíl, fór soldið seint að sofa og átti að vakna klukka hálf 8 til að fara upp á Skarðsheiði með Bellu, en þegar ég vaknaði var svartaþoka svo ferðin var blásin af og ákveðið að fara bara upp úr hádegi ef það kæmi betra veður ( sem kom ekki svo laugardagurinn var bara notaður í heimsóknir) fór svo í bío um kvöldið.

Á sunnudeginum fórum við í fjallgöngu upp í Hafnarfjall, fundum okkur fjall í miðjunni á fjallgarðinum og úfff hvað það var erftitt að komast upp á toppinn. Smágrjóts brekka (tvö skref upp eitt niður) upp að þverhníptum tindinum sem við þurftum að klifra upp (ég dúndraði hnénu í klettinn og áááátz) en svo kom hinn langþráði tindur í ljós og enn þá allt í þoku argg svo við lögðumst bara niður og fengum okkur sígó en þegar við settumst upp var búið að rofa til og við sáum yfir Borganes og Snæfellsnes geggjað. Leiðin niður var kostuleg, við vorum jafn lengi niður og upp sem er ekki algengt. Við þurftum að prófa allskonar leiðir þar sem engin var nógu örugg, við runnum í hlíðunum og ég jæja verð að klára seinn er að fara í tíma bæbæ


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 13:15:48 / helgam

...

Jæja verð ég ekki að skrifa eitthvað um þessa blessuðu helgi?? Þannig var mál með vexti að ég átti að fara á fyrstu hjálpar námskeið en það var hætt við það :( svo ég varð að finna mér eitthvað annað að gera. Svo mín ákveður þá bara að taka smá djammhelgi þar sem það er svo langt síðan ég gerði það ;). Plataði Lollu með mér út á föstudaginn, ákvað að sýna henni Skagadjammið, svo slógust Bella, Begga og Jón með okkur í för og við fórum á mörkina þar sem allt skemmtilega fólkið var saman komið ( nokkuð vel í glasi ;) ) hehe og úr þessu varð í fínasta skemmtun var allaveganna komin heim um 6 sem segir meira en mörg orð. Fórum svo í bæinn á laugardeginum og sumir versluðu meira en aðrir, og ég eyddi tímanum í að hugsa um hvað gæti slegið á þynnkuna (boostið bjargaði miklu, og að eyða smá pening í glingur), lituðum hárið á Bellu og kíktum svo aftur á mörkina( það var platað ofan í mig áfengi, þar sem ég ætlaði ekki að drekka neitt) var komin heim um 3 nokkuð edrú. Á sunnudeginum fór ég í bæinn til Heiðar, kíktum á kaffihús og fleira hehehe. Missti af strætó og gisti hjá henni, var svo handónýt á mánudeginum, eiginlega ósofin og eitthvað lasin held ég bara ;). Útkoman sem ég fæ eftir þessa helgi er að nú er kominn tími á að hvíla sig á þessu og fara að einbeita sér algjörlega að fjöllunum og reyna að nýta snjóinn eitthvað. Ætla norður á Akureyri um helgina á snjóbretti, og ef það klikkar þá er það Skarðsheiði + Bláfjöll.+' Þangað til næst bæbæ ( Reynið svo að kommenta eitthvað hver sem þið eruð ! )

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 18:44:52 / helgam

jaha

Ja það er ekkert sma langt siðan eg bloggaði siðast, 

Eins og glöggir lesendur taka eftir þa er eitthvað að þessu lyklaborði og eg get ekki gert komur fyrir ofan stafi eins og i a  og i hehe.

Va eg veit ekki hvar eg a að byrja það er svo langt siðan eg skrifaði og margt buið að gerast, Eg er bara buin að vera i skolanum og ræktinni svona a virkum dögum,

en um siðustu helgi for eg i Þorsmörk með Ba, við vorum 6 manns og ætluðum að skella okkur i isklifur, ferðin byrjaði vel, mættum upp i hus um 8 og lögðum a stað um 9 a þessum lika geðveika bil Ford Excursion (uff hvað hann er flottur!!) Stoppuðum i næstum hverri einustu sjoppu a leiðinni eg get svo svarið það !! hehe. Svo komum við upp i Þorsmörk um hadegi, eg byrjaði a þvi að gripa plastsko sem er glerharður og er með risa mar a hendinni :S til sönnunar þess, svo þegar við erum tilbuin i klifrið röltum við að stað og þurftum að labba svollitið að Gigjökli og fara yfir jökullon. Jæja til að gera langa sögu stutta þa dett eg ofan i lonið!! eg get svo svarið það eg þarf að fara að hætta þessum glæfrahætti og fara að vera hrædd við eitthvað hehe eg rölti alltof nalægt jaðarnum til að skoða isjaka og isinn brotnaði undan mer og eg datt ofan i iskalt lonið  hehehe svo þorði enginn að koma of nalægt svo eg þurfti að klifra sjalf upp, rennandi blaut og með þunga tösku a bakinu ;) hehe ja eg veit eg er klaufi. Heldum svo ferðinni afram og klifruðum aðeins i jöklinum og lögðum svo a stað heim og allir BUNIR a þvi. Kikti svo aðeins ut með Heiði um kvöldið.

Daginn eftir for eg með Bryndisi a.k.a BB ;) hehe, að profa crossarann hennar, forum herna upp i fjall og við tok þessi lika fina kennslustund hja BB og mer hent a hjolið öll dressuð upp og eg held að eg hafi bara staðið mig vel, allaveganna datt eg ekki og BB var anægð með mig. Svo nuna er næst a dagskra að kaupa ser crossara og eg held að BB selji mer bara sinn( ekki satt BB??)

Va hvað eg er ekki að nenna að skrifa lengur og þið verðið að afsaka allar villur og skrif vitleysur þar sem eg er að drifa mig ur tölvunni og i ljos, skrifa meira seinna bæbæ i bili 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 11:12:34 / helgam

Jájá

Jæja elsku Bryndís mín ég skal þá skrifa eitthvað fyrir þig.

Það sem er í fréttum er að ég er búin að vera að skemmta mér pínu mikið, fór með mömmu á Oliver fyrir 2 helgum og það var rosa stuð. fórum að hitta vin hennar sem rekur einhverja ferðaskrifstofu og var þarna með fólk úr einhverri ferð. ( setning með met fjölda af e- orðum =) ). Nennti nú ekkert að spjalla mikið við það lið, en hitti fullt af fólki sem ég þekkti svo ég stakk mömmu af og fór að djamma með þeim. Helgina eftir s.s síðustu helgi átti Bella afmæli og var haldið upp á það með pompi og prakt, vorum fyrst heima hjá henni og fórum í kókosbolluát, drykkjukeppni og fullt af öðrum svona 12 ára leikjum geggjað stuð, kíktum svo aðeins á Mörkina og röltum svo heim með viðkomu í sjoppu og fengum okkur franskar og annað slíkt.

vöknuðum svo í hádeginu og röltum upp á Ölverfjall í þessu líka sumarveðri vorum 2 1/2 tíma upp og svo hálfann niður, þar sem við renndum okkur niður malarbrekku á blússandi ferð, það var geggjað og mikið hlegið. Glápti svo á video með Alex um kvöldið.

Ég og Bryndís Bára fórum á sunnudeginum og kíktum á nokkra motorcrossstaði og er ég mikið að pæla í því að láta undan þrýstingnum frá henni ;o) og kaupa mér crossara. Fórum svo í bæinn og kíktum í kringluna og svo í Mosó að skoða shefferhvolpa... þvílíkar dúllur hef ég nú bara ekki séð 10 stk 3 vikna gamli hvolpar = verður ekki krúttlegra.

En núna er bolludagur kominn og ég er að fara að vinna í bakaríinu eftir skóla. Verði ykkur að góðu og passið ykkur á að borða nóg að bollum þar sem þessu dagur er bara einu sinni á ári =)

En þangað til næst bæbæ 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 12:28:42 / helgam

...

Hvernig í andskotanum nennið þið að vera að kíkja hérna inn, ég bara spyr? ekki eins og síðan sé neitt rosalega virk :) . En annars er bara allt gott að frétta af mér, fór á uppskeruhátiðina og það var massa fyllerí og geggjað gaman. Vorum til að byrja með hérna á skaganum og renndum svo í bæinn og kiktum á Oliver og svo aftur heim um 6.

Hætti svo að reykja á mánudeginum eftir og labbaði 3 sinnum upp á fjall í þeirri viku ;) og 3 í ræktina geggjað dugleg ! Já og vá ég fór í Boot camp hjá honum Ingólfi í gær og er alveg vekk núna af harðsperrum og ég sem hef ekki fengið harðsperrur... já ég held bara aldrei. Og núna er ég með harðsperrur á milli rifbeinana og bara alls staðar þar sem það eru vöðvar. Þetta er klukkutíma púl og það er engin pása, og þessa svokölluðu hvíldarstellingar eru erfiðastar. Hvíld: armbeygjustaða, plankinn og 90°horn upp við vegg hehe. En ég er mikið að pæla í því að skella mér í þetta, held að maður komist í form á no-time.

Nenni ekki að skrifa meira þar sem þetta hérna a undan er nú hálfgerð vitleysa skrifuð í flýti.(vildi bara láta vita að ég er á lífi)

Þangað til næst bæbæ 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 23:57:30 / helgam

Ný færsla kannski?

Það er nú ekkert rosalegt að frétta, er bara að reyna að ná mér upp úr þessum veikindum og plana uppskeruhátíðina sem er núna á laugardaginn. Þetta er engin smá vinna og þar sem við ætlum að elda matinn-skreyta-sjá um skemmtiatriði og ég bara veit ekki hvað, þá tekur þetta engann smá tíma og á eftir að taka allann laugardaginn : / úff sumir verða búnir á sunudaginn og þá er bara að hætta að reykja og drekka í bili ;) hehe og fara að ganga upp á þessi fjöll sem eru hérna nálægt.

Vona að þið skemmtið ykkur vel um helgina, allavegnna ætla ég að gera það ;)

Þangað til næst bæbæ 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 14:04:28 / helgam

reunion

úff hvað ég er ekki búin að vera í stuði né hafa tíma til að skrifa hérna, en núna ætla ég að gera heiðarlega tilraun til að blogga eitthvað á meðan Alex sefur. Ég fór í bæinn til mömmu á föstudaginn og tók því rólega í veikindunum um kvöldið og vonaði að mér myndi batna fyrir krafaverk á einum degi ;) af því á laugardeginum var reunionið hjá Foldaskóla. Og eins og maðurinn sagði ''mind over matter'' og á laugardeginum kl 16 var mér eigninlega batnað hehe gerði mig klára fyrir djammið og fór til Konny kl 17:30 hitti foreldra hennar sem var alveg geggjað gaman af því ég hef ekki hitt þau í háa herrans tíð, svo kl 18 komu Gullý og Margrét Rut og það var rosalega gaman að hitta þær aftur, svo fjölgaði alltaf fólki úr bekknum og við sátum þar til kl 21 en þá fórum við níður í bæ til að hitta restina úr árgangnum í Brokeyjarskála. Þar var ekkert smá stuð allir í svo góðum fíling og virist sem allir hefðu jafn gaman af því að vera þarna, við skoðuðum slide-show með myndum frá skólatímanum og fórum í leiki. Svo var dansað þar til kl 02 og stefnan svo tekin á skemmtistaðina. Kíkti  aðeins á Vegamót með Maríu og Örnu, og síðan röltum við yfir á Kofann þar sem meirihluti fólksins var. Tók svo taxa með Konný, Maríu og Eyþóri heim kl 04. En allavega þá var þetta frábært kvöld í alla staði, hefði ekki getað verið betra. Svo varð ég ekki einu sinni þunn, þar sem ég drakk ekkert rosalega mikið (ég held að ég sé bara að læra þetta)

Er svo að fara á skyndihjálparæfingu í kvöld, skyldumæting þó ég sé veik( já mér batnaði bara í einn dag) hehe. Jæja það ætti allavegann að vera gaman.

En þangað til næst bæbæ

Ps það er ekkert hættulegt að skrifa í gestabókina :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 17:13:32 / helgam

Mánudagur

ég sagðist víst ætla að skrifa eitthvað í dag ef ég kæmist heim af fjallinu, og viti menn hérna er ég ;). Þetta var rosalega fín helgi þó að ekkert hafi orðið af snjóhúsagerðinni, við röltum þó upp í Skarðsheið með 15-20kg þunga bakpoka og í plastskóm og gekk ferðin vel þrátt fyrir grenjandi rigningu, rok og oft snjó upp að hnjám. Við fundum snjóhengjur og æfðum tryggingar og sig og renndum okkur niður ca 15-20 metra þverhnípta brekku :) rosa-stuð. Fórum svo upp í Skorradal og gistum þar í skálanum, grilluðum og spurðum svo trivial persuit spurninga (spilið var ekki á staðnum). Fórum svo og lékum okkur í snjónum daginn eftir og keyrðum svo heim.

-70stiga frost í Síberíu ( Rússlandi) ætli við séum að fá nýja ísöld.

Við keyptum okkur einn snjósleða í gær og bíðum núna eftir því að komast yfir annan, shit hvað það verður gaman að trylla á þeim.

Til hamingju með nýja nafnið Bryndís Bára :)

En þangað til næst bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 13:16:50 / helgam

Snjóhús

Jæja þá er komin enn önnur helgin, þær virðast bara koma og fara hjá mér, sem er ekkert slæmt þannig, nema miðað við ferðina á tímanum núna þá verð ég orðin 80ára áður en ég veit af :S svo það er eins gott að nýta tímann sem ég hef og lifa lífinu á meðan það er. Og í tilefni af því þá ætla ég upp í Skarðsheiði í fyrramálið, ganga upp á toppinn með smá klifri á leiðinni og búa svo til snjóhús og sofa í því. Það verður vígalegt svo er bara að biðja guð um að það verði ekki snjóflóð og ég verði undir því 8| hehehe neinei það gerist aldrei ég fer með vönu fólki svo þetta ætti að reddast. Annars er bara það sama að frétta og vanalega, skóli-vera með Alexöndru- ræktin- sofa og svo byrjar það allt upp á nýtt daginn eftir. Á víst að mæta í Boot camp kl 1900 hjá Ingólfi (Bára viltu koma með??). Já og svo er undirbúningur Uppskeruhátíðarinnar í fullum gangi þetta verður rosa hátíð og með fólk eins og okkur Bellu í stjórn þá ætti þetta að verða teiti aldarinnar ;)

En þangað til næst bæbæ ( skrifa á mánudaginn ef ég verð komin niður af fjallinu hehe)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 21:21:22 / helgam

come-back

Jæja ætli ég haldi ekki eitthvað áfram með síðuna, ekki búast samt við því að ég skrifi eitthvað mikið né oft. En nýjustu fréttirnar eru þær að ég er alltaf í skólanum, fer í ræktina ca einu sinni á dag, var á fjallamennsku námskeiði á föstudaginn og fór upp á Háahnjúk á laugardagsmorgun í mjög blönduðu veðri allt frá sól og blíðu til hagléls á stærð við bingókúlur, fór svo á djammið á laugardagskveldinu sem endaði þannig að ég drakk alltof mikið enda frítt áfengi og crashaði í eftirpartyinu og vaknaði því í annara manna húsi kl 1030 í morgun hehehe. Svo núna á ég bara eftir þessi tvö djömm og svo er ég komin í 6 mánaða hvíld, svo maður verði nú í toppformi í sumar þar sem við vorum að ákveða að toppa kannski Matterhorn í sömu ferðinni og Blancarann  http://www.panoramas.dk/fullscreen2/full34.html hérna getið þið séð flottar myndir af Matterhorn í svona 360 gráðu sýn (þurfið bara að klikka og hreyfa músina) og þetta er auðvitað bara geggjað : http://www.webcam-montblanc.com/webcam/ 

Þangað til næst bæbæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 21:22:25 / helgam

hætt

ég er að hugsa um að hætta þessu blogg veseni!!! þetta tekur allt of mikinn tíma frá mér, ég hef annað og betra við tímann að gera, og svo held ég að það sé ekki gott að vera að tjá sig svona á veraldarvefnum,ég held að fólk sé hætt að eiga eðlileg samskipti þar sem það lesa allir bara bloggið og hafa svo ekkert að segja frá þegar þeir hittast loksins!, hef ekki mikla trú á þessu og ef fólk hefur áhuga á því að vita eitthvað um mig eða hvað er að frétta þá getur það bara spurt mig.

Svo hér með kveð ég þessa bloggsíðu með litlum söknuði og ef þið viljið fá fréttir þá getið þið bara hringt ;)

bæbæ


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 14:32:06 / helgam

#6

Jæja þá er ég búin að sækja stundatöfluna mína, hún er nokkuð góð ef ég hefi viljað taka 15 einingar sem ég er ekki sátt með þar sem ég sótti um 21 stk. Ég byrja alltaf kl 8 og fer ekki í neitt gat og er í síðasta lagi búin kl 14. Það hefði verið ljúft ;) en ég þarf að reyna að koma 2 áföngum inn í viðbót svo þetta breytist eitthvað.                        

Við töltum upp á Akrafjall í gær í mannvonskuveðri :) rigning til að byrja með svo tók við snjókoma og á toppnum var hávaðarok, svo við hrökkluðumst til baka (fukum réttara sagt ;)).                                                                                                       

Svo fór ég á fyrsta ''vinnufundinn'' minn í gær og þetta lítur bara vel út og það verður ábyggilega mjög gaman að vera með þessum krökkum í vetur.                                

Haldið ekki að ég hafi náð að horfa á eina mynd í gær!! hehe og þvílíka snilldar mynd í þokkabót hún heitir Equilibrium og skartar Christian Bale í aðalhlutverki og hann er bara svalur í þessari mynd og mæli ég með því að þið kíkjið á hana.

Annars er ekkert mikið að frétta í dag, minni ykkur á að lifa lífinu og svo ég segi bara þangað til næst bæbæ.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2